Alicante - Heimsferðir
Alicante
Hagnýtar upplýsingar fyrir Alicante

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Alicante heitir Alicante-Elche Airport (ALC). Flugtíminn til Alicante frá Keflavík er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Í einstaka tilfellum er flug stuttu eftir miðnætti og því er mæting á flugvöll í raun „kvöldinu áður“ en flugdagsetning segir til um. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Alicante með flugfélaginu Neos Air. Hver farþegi í pakkaferð má að hámarki hafa 20 kg tösku, auk 8 kg handfarangstösku (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Farþegar sem kaupa sér eingöngu flug eru með innifalið veski/bakpoka sem kemst undir sæti.

Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Á Spáni er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Spáni og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu. um.

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Ferðamannaskattur og trygging
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin ræðst af stjörnugjöf hótelanna hverju sinni. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaka hótel fer fram á tryggingargjald sem er endurgreitt við brottför ef ekkert tjón hefur orðið á herbergi/íbúð meðan á dvöl stóð. Þá getur hótelið farið fram á kreditkortanúmer sem tryggingu meðan á dvöl stendur. 

ATH. Aðeins er boðið upp á þjónustu fararstjóra símleiðis fyrir þá farþega sem staðsettir eru  í Calpe.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 60-90 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

ATH. Ekki er boðið upp á akstur til og frá hótelum sem eru staðsett í Calpe.

Barnabílstólar
Algengt er að ferðamenn leigi bílstóla fyrir börn þegar ferðast er til annarra landa. Oft er hægt að panta slíka stóla í gegnum bílaleigur en hér eru einnig nokkrar slóðir á slíkar leigur:

Sunshine Babies

Rafskutlur 
Algengt er að ferðamenn leigi sér rafskutlur. Þetta á oft við í tilfellum þar sem farþegar eiga erfitt með gang til dæmis. Hér má finna leigur . em bjóða upp á rafskutlur. 

Rent Scooter

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu fararstjóra. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Að öllu jöfnu er skráning út af hótelum um hádegisbil á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Benidorm
Ms Yolanda Campus Alcaraz
Heimilisfang:
Calle Gambo, N° 3
Edificio Las Palmas
Escalera B 1º, Puerta 8 
Sími: (96) 680 0387 
Netfang: mcampus-alcaraz@icali.es

Orihuela Costa
Mr Manuel Zerón Sánchez – Honorary Consul
Heimilisfang:
Calle Cove Advisers
Alhelies Street N° 1, Unit 3, Playa Flamenca
ES-03189 Orihuela Costa
Netfang: cove@coveasesores.com
Sími: (96) 634 2518