Budva - Heimsferðir
Budva
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Budva heitir Tivat Airport (TIV). Flugtíminn frá Keflavík um 5 klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera einir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Flugvöllurinn er staðsettur í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Budva.

Farangur og farangursheimild 
Haustið 2024 er flogið til Budva með flugfélaginu Neos Air og er leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri 20kg á hvern farþega auk 8kg í handfarangur (hámark stærð á tösku í handfarangri er 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími, rafmagn, tölvur 
Í Svartfjallalandi er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Svartfjallalandi og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringja skal úr íslenskum síma í svartfjallenskt númer skal setja inn 00382- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað 
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða ónægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða í Bæjarlind 6 í síma 00354 5951000 á skrifstofutíma.

Ferðamannaskattur
Ferðamannaskattur er í Budva. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli.  Upphæðin er mismunandi eftir hótelum. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 40 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem að hafa ber í huga, sem og dagskrá skoðunarferða. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Læknar og apótek
Ágæt læknisþjónusta er í Budva og apótek eru víða. Hægt að komast í samband við enskumælandi lækni með milligöngu hótelmóttöku eða fararstjóra.


Gjaldmiðillinn í Svartfjallalands er evra (EUR).

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Einnig má sjá brottfarartíma frá hóteli á dagskrárblöðum sem farþegar hafa fengið sent í tölvupósti. Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum kl.11 á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef á þarf að halda. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður 
Mr. Isuf Berberi - Honorary Consul
Heimilisfang:
Rr. Faik Konica, Nd. 6 H.7, kt. 3
1010 Tirana
Netfang: iberberi@otto-al.comisufberberi@gmail.com
Farsími: 682 060 863
Landsnúmer: 355

Ísland er því miður ekki með ræðismann í Svartfjallalandi en næsti ræðismaður er í Tirana í Albaníu.

Vefslóðir um Budva
https://budva.travel/
https://www.visit-montenegro.com/destinations/budva/

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Avala Resort & Villas

Budva

Hotel Fagus

Budva

Hotel Millennium

Budva

Hotel California

Budva

Hotel Momentum

Budva

Hotel Diplomat

Budva

Splendid Conference & Spa Hotel

Budva

Eurostars Queen of Montenegro

Budva

Hotel Palas

Petrovac

Hotel Aleksandar

Budva

Slovenska Plaza

Budva

Hotel AMI

Budva