Madrid - Heimsferðir
Madrid
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Madrid heitir Adolfo Suárez Madrid-Barajas Airport (MAD). Flugtíminn til Madrid frá Keflavík er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Flugvöllurinn er staðsettur um 27 km frá miðbæ Madrid.

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Madrid með flugfélaginu PLAY, leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega. Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Á Spáni er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Spáni og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða ónægja er með íbúð eða herbergi skal gera starfsfólki hótelsins viðvart, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Ekki er fararstjóri á vegum Heimsferða í Madrid.

Upplýsingar um ferðir milli flugvallar og  Madrid
Ekki er boðið upp á akstur á vegum Heimsferða inn í miðborg Madrid. 
Frá flugvellinum er hægt að taka neðanjarðarlest, lest, rútu eða leigubíl, upplýsingar má finna á vefsíðu flugvallarins undir „Getting there“. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótels. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum um hádegi á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
MrIñigo Ortega Urretavizcaya - Consul General 
Heimilisfang:
Pollensa 2
ES-28290 Las Rozas
Netfang: icelandic.consulate.madrid@gmail.com 
Sími: 915 904 539
Landsnúmer: 34