Verona - Heimsferðir
Verona
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Verona heitir Valerio Calullo Airport (VRN). Flugtíminn til Verona frá Keflavík er um 4 klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Flugvöllurinn er staðsettur um 12 km frá miðbæ Verona. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Verona með flugfélaginu Neos Air. Leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega, auk 8 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn
Á Ítalíu er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Ítalíu og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í númer í ítalskt númer skal setja inn 0039- á undan númerinu.  

Þjónusta á áfangastað 
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma. 

Ekki er fararstjóri á vegum Heimsferða í Verona.

Ekki er boðið upp á akstur á milli flugvallar og Verona á vegum Heimsferða. 

Ferðamannaskattur og trygging
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin ræðst af stjörnugjöf hótelanna hverju sinni. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaka hótel fer fram á tryggingargjald sem er endurgreitt við brottför ef ekkert tjón hefur orðið á herbergi/íbúð meðan á dvöl stóð. Þá getur hótelið farið fram á kreditkortanúmer sem tryggingu meðan á dvöl stendur. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótels. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum fyrir kl. 11:00 á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mrs. Olga Clausen - Honorary Consul General
Heimilisfang:
Via Luigi Vitali, 2
IT-20122 Milano
Netfang: olgaclausen@iol.it 
Sími: 02 783 640
Farsími: 33 5521 2550
Landsnúmer: 39