Berlín - Heimsferðir
Berlín
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Berlín heitir Berlin Brandenburg airport (BER). Flugtíminn frá Keflavík til Berlín er um 3 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Flugvöllurinn er staðsettur um 25 km frá hótelinu sem gist er á. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Berlín með tveimur flugfélögum árið 2024.

Í ferðum í apríl, maí og lok október er flogið með flugfélaginu Icelandair. Leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 23 kg taska á hvern farþega, auk 10 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 56x45x25 cm). 

Í byrjun október er flogið með flugfélaginu PLAY. Leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega auk lítillar tösku sem kemst undir sætið fyrir framan þig.  

Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn
Í Þýskalandi er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Þýskalandi og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í þýskt númer skal setja inn 0049- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Ferðamannaskattur og trygging
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin ræðst af stjörnugjöf hótelanna hverju sinni. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaka hótel fer fram á tryggingargjald sem er endurgreitt við brottför ef ekkert tjón hefur orðið á herbergi/íbúð meðan á dvöl stóð. Þá getur hótelið farið fram á kreditkortanúmer sem tryggingu meðan á dvöl stendur. 

Enginn fararstjóri er á vegum Heimsferða í Berlín

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótelsins. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum um hádegi á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Ms. Petra Neykov – Honorary Consul
Heimilisfang:
Lengstrasse 1
DE-27572 Bremenhaven 
Netfang: honorarkonsulat@island-bremerhaven.de
Sími: 471 973 21 102
Landsnúmer: 49

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Park Inn Alexanderplatz Berlin

Berlín