Calabria - Heimsferðir
Calabria
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Calabria heitir Lamezia Terme (SUF). Flugtíminn frá Keflavík um 5 klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera einir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. 

Farangur og farangursheimild 
Haustið 2024 er flogið til Calabria með flugfélaginu Neos Air og er leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri 20kg á hvern farþega auk 8kg í handfarangur (hámark stærð á tösku í handfarangri er 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími, rafmagn, tölvur 
á Ítalíu er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Ítalíu og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringja skal úr íslenskum síma í ítalskt númer skal setja inn 0039- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað 
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða ónægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða í Bæjarlind 6 í síma 00354 5951000 á skrifstofutíma.

Ferðamannaskattur
Ferðamannaskattur er á Ítalíu. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli.  Upphæðin er mismunandi eftir hótelum. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 30-60 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer og hvar þau eru staðsett.

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem að hafa ber í huga, sem og dagskrá skoðunarferða. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Læknar og apótek
Ágæt læknisþjónusta er í Calabria og apótek eru víða. Hægt að komast í samband við enskumælandi lækni með milligöngu hótelmóttöku eða fararstjóra.

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Einnig má sjá brottfarartíma frá hóteli á dagskrárblöðum sem farþegar hafa fengið sent í tölvupósti. Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum kl.11 á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef á þarf að halda. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður 
Mrs. Olga Clausen - Honorary Consul General
Heimilisfang:
Via Luigi Vitali, 2
IT-20122 Milano
Netfang: olgaclausen@iol.it 
Sími: 02 783 640
Farsími: 33 5521 2550
Landsnúmer: 39

Vefslóðir um Calabria

https://www.italia.it/en/calabria
https://iitalycalabria.com/

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

TUI Magic Life Calabria

Calabria

Hotel Tropis

Calabria

Hotel Villa Antica

Calabria

Colomba D'Oro

Calabria