Split - Heimsferðir
Split
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Split heitir Split Airport (SPU). Flugtíminn til Split frá Keflavík er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottförFarþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. Flugvöllurinn er staðsettur um 25 km frá Split. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Split með flugfélaginu Neos Air. Leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega, auk 8 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn
Í Króatíu er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Króatíu og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í króatískt númer skal setja inn 00385- á undan númerinu.  

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Ferðamannaskattur og trygging
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin ræðst af stjörnugjöf hótelanna hverju sinni. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaka hótel fer fram á tryggingargjald sem er endurgreitt við brottför ef ekkert tjón hefur orðið á herbergi/íbúð meðan á dvöl stóð. Þá getur hótelið farið fram á kreditkortanúmer sem tryggingu meðan á dvöl stendur. 

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 40-60 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga, sem og dagskrá skoðunarferða. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Læknisþjónusta
Ágætis læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu fararstjóra. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn í Króatíu er evra (EUR). 

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Einnig má sjá brottfarartíma frá hóteli á dagskrárblöðum sem farþegar fá sent í tölvupósti. Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum um hádegi á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mr. Marin Filipovic - Honorary Consul
Heimilisfang:
Ulica Ljudevita Gaja 46/1
HR-10000 Zagreb
Netfang: konzulat@island.hr 
Farsími: (0) 98 278 000
Landsnúmer: 385

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Hotel Ora

Split

Hotel Globo

Split

Hotel Amphora

Split

Atrium

Split

Le Meridien Lav Hotel

Split

AC Marriott

Split

Radisson Blu

Split

Hotel Mondo

Split

Stökktu til Split

Split