Albufeira - Heimsferðir
Albufeira
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn í Albufeira heitir Aeroporto Internacional de Faro (FAO). Flugtíminn til Faro frá Akureyri er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Faro með flugfélaginu Neos Air, leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega auk 8 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Í Portúgal er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Portúgal og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í portúgalskt númer skal setja inn 00351- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 40-60 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Barnabílstólar
Algengt er að ferðamenn leigi bílstóla fyrir börn þegar ferðast er til annarra landa. Oft er hægt að panta slíka stóla í gegnum bílaleigur en hér er einnig leiga:

UpaBaby

Rafskutlur
Algengt er að ferðamenn leigi sér rafskutlur. Þetta á oft við í tilfellum þar sem farþegar eiga erfitt með gang til dæmis. Hér má finna leigur sem bjóða upp á rafskutlur. 

Albufeira Mobility
Albufeira Mobility Rental
Algarve Accessibility
Mobility Equipment Hire Direct

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu fararstjóra. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingarkortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Að öllu jafna er skráning út af hótelum um hádegisbil á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef á þarf að halda. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Ms. Helena C.T. Gureea Dundas - Honorary Consul
Heimilisfang:
Rua José Ferrao Castelo Branco, 19
PT-2770-099 Paco D‘Arcos
Netfang: ice.lisbon@gmail.com
Farsími: 21 441 1564
Landsnúmer: 351

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

KR Hotel Albufeira Lounge

Albufeira

Clube Albufeira Garden Village

Albufeira

Grande Real Santa Eulalia

Albufeira

Cerro Mar Atlantico

Albufeira

Vila Recife

Albufeira

Aqua Pedra Dos Bicos

Albufeira

Hotel Do Cerro

Albufeira

NAU Sao Rafael Atlantico

Albufeira

Santa Eulalia Suite Hotel and Spa

Albufeira

Baia Grande

Albufeira

Balaia Mar

Albufeira

Roca Belmonte

Albufeira

Stökktu til Albufeira

Albufeira