Agadir - Heimsferðir
Agadir
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur 
Flugvöllurinn í Agadir heitir Al Massira Airport (AGA). Flugtíminn til Agadir frá Keflavík er um 5 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta.

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Agadir með flugfélaginu Neos Air. Hver farþegi má að hámarki hafa 20 kg tösku, auk 8 kg handfarangstösku (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Í Marokkó er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Marokkó og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í marokkóskt númer skal setja inn 00212- á undan númerinu. 

ATH! það getur verið mjög dýrt að hringja úr íslenskum farsímum í Marokkó og einnig ef farið er á Internetið þar sem notað er íslenskt gagnamagn. Best er að hafa slökkt á gagnamagninu og kynna sér verðskrá símafyrirtækisins.

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 45 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Ef þarf á læknisaðstoð að halda er hægt að fá aðstoð enskumælandi læknis með milligöngu hótelmóttöku eða fararstjóra Heimsferða. Þar sem Marokkó fellur ekki undir EES ríki skal huga vel að ferða- og sjúkratryggingum áður en farið er af stað. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn í Marokkó er Dirham. Dirham fæst ekki á Íslandi en bæði er hægt að taka með evrur og fá þeim skipt, en einnig eru hraðbankar mjög víða í Agadir og gjarnan inni á hótelunum. Einn Dirham eru tæplega 14 ISK samkvæmt skráningu í maí 2023.

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Einnig má sjá brottfarartíma frá hóteli á dagskrárblöðum sem farþegar fá sent í tölvupósti. Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum um hádegi á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mr. Driss Benomar – Honorary Consul
Heimilisfang: 
41 rue Kharzouza
20200 Casablanca
Netfang: consulatislandemaroc@gmail.com
Sími: (522) 95 09 55 / 68
Landsnúmer: 212

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Iberostar Founty Beach

Agadir

Royal Decameron Tafoukt

Agadir

Kenzi Europa

Agadir

Sofitel Thalassa Sea & Spa

Agadir

Hyatt Place Taghazout 5*

Taghazout

Hyatt Regency Taghazout

Taghazout

Allegro Barcelo Agadir

Agadir

Hilton Taghazout Bay Beach Resort & Spa

Taghazout

Almoggar Garden Beach

Agadir

Golden Beach Appart'Hotel

Agadir

Rofaida Apart Hotel

Agadir

Riu Tikida Beach

Agadir

Riu Tikida Dunas

Agadir

Riu Tikida Palace Agadir

Agadir

Riu Tikida Palace Taghazout

Taghazout

Stökktu til Agadir

Agadir

Hringferð um Marokkó og dvöl í Agadir

Agadir