Costa del Sol - Heimsferðir
Costa del Sol
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn á Costa del Sol heitir Aeropuerto de Málaga-Costa del Sol (AGP). Flugtíminn til Málaga frá Keflavík er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Málaga með flugfélaginu PLAY, leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega auk 12 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 56x45x25 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Á Spáni er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Spáni og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma. 

Ekki er fararstjóri á vegum Heimsferða á Costa del Sol

ATH. Ekki er boðið upp á akstur á Costa del Sol svæðinu

Barnabílstólar
Algengt er að ferðamenn leigi bílstóla fyrir börn þegar ferðast er til annarra landa. Oft er hægt að panta slíka stóla í gegnum bílaleigur en hér eru einnig nokkrar slóðir á slíkar leigur:

Baby Equipment Rental
The Stork Exchange

Rafskutlur
Algengt er að ferðamenn leigi sér rafskutlur. Þetta á oft við í tilfellum þar sem farþegar eiga erfitt með gang til dæmis. Hér má finna leigur sem bjóða upp á rafskutlur. 

Malaga Mobility Rental
Mobility Costa
Hola Mobility

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótelsins. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum fyrir kl. 12:00 á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mr. Per Dover Petersen
Heimilisfang:
Edif. Ronda I, 3B
Marítimo 91
ES-29640 Fuengirola
Málaga
Sími: (0034) 952 661 200 
Netfang: info@isconsul.com  

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

AluaSoul Costa Malaga

Torremolinos

Hotel Ocean House Costa del Sol

Torremolinos

Bajondillo Apartments

Torremolinos

Melia Costa del sol

Torremolinos

Hotel Best Benalmadena

Benalmadena

AluaSun Marbella Park

Marbella

Sol Don Pedro

Torremolinos

Hotel Best Siroco

Benalmadena

Sol Don Marco

Torremolinos

Hotel Puente Real

Torremolinos

Hotel Best Triton

Benalmadena

Hotel BlueBay Banus

Marbella

Sol Don Pablo

Torremolinos

Apartments La Jabega

Fuengirola

Sol Timor

Torremolinos

Hotel & Apartments Myramar Fuengirola

Fuengirola

Apartamentos Veramar

Fuengirola

Sol Principe

Torremolinos

Hotel Senator Marbella Spa

Marbella

Senator Banus Spa

Estepona

Cortijo del Mar Resort

Estepona

Aluasun Lago Rojo

Torremolinos

Estival Torrequebrada

Benalmadena

AluaSun Costa Park

Torremolinos

Hotel Alay

Benalmadena

Stökktu

Malaga

La Barracuda

Torremolinos

Occidental Torremolinos Playa

Torremolinos

Medplaya Hotel Bali

Benalmadena

Marconfort Griego Hotel

Torremolinos

Pierre & Vacances Benalmadena

Benalmadena

Moon Dreams Torremolinos Hotel

Torremolinos

Tent Torremolinos (Áður Hotel Natali)

Torremolinos

Monarque Fuengirola Park

Fuengirola

Monarque El Rodeo

Marbella

Monarque Torreblanca

Fuengirola

Aparthotel Stella Maris

Fuengirola

El Puerto by Pierre Vacances

Fuengirola

Occidental Fuengirola

Fuengirola

Aparthotel Puerto Azul

Marbella

Higueron Hotel Málaga

Malaga

Holiday World Riwo

Benalmadena

Aparthotel Fuengirola Beach

Fuengirola

Occidental Puerto Banus

Marbella

Parasol Garden

Torremolinos

Ibersol Torremolinos Beach

Torremolinos

Medplaya Alba Beach

Benalmadena

Hotel Oh Nice Caledonia

Estepona

Obal Urban Hotel

Marbella

Hotel SPA Benalmadena Palace

Benalmadena